Til baka

Persónuvernd

Við virðum friðhelgi þína. Þessi vefur safnar engum gögnum um þig nema þú hafir samband að fyrra bragði.

01

Engin vöktun

Við fylgjumst ekki með þér. Við notum engar markaðskökur (cookies), engin greiningartól frá þriðja aðila og enga atferlisrakningu á þessari vefsíðu. Þjónustuveitan sem hýsir vefinn meðhöndlar einungis IP-tölur og tæknileg gögn í rauntíma til að tryggja netöryggi og verjast árásum.

02

Gagnasöfnun

Ef þú notar samskiptaformið okkar söfnum við þeim upplýsingum sem þú gefur upp, eingöngu til að geta svarað fyrirspurn þinni. Til að koma skilaboðunum til skila notum við tölvupóstþjónustuna Resend, sem starfar einungis sem vinnsluaðili fyrir okkar hönd. Við hvorki seljum, leigjum né miðlum þessum upplýsingum til þriðja aðila í markaðstilgangi.

03

Gildissvið

Þessi persónuverndarstefna gildir eingöngu um notkun þína á þessari vefsíðu. Meðhöndlun gagna og persónuvernd fyrir viðskiptavini í gagnaverum okkar stjórnast alfarið af viðkomandi þjónustusamningum.

04

Réttindi og samband

Ábyrgðaraðili persónuupplýsinga er Stormur Datacenters (kt. 590224-0730). Þú átt rétt á að óska eftir aðgangi að upplýsingum þínum, leiðréttingu þeirra eða eyðingu — sendu beiðni á [email protected]. Upplýsingar úr sambandsforminu eru einungis notaðar til að svara fyrirspurn þinni og ekki geymdar lengur en nauðsyn krefur.